10.5.2011 | 18:49
Júróskvúróvision ðá ðá
Góðar Íslenskir hálskirtlar vinir okkar, frændur og frænkur og aðrir sem búið á næstu gresjur.
Það er mér svo sannkölluð ánægja að afhenda þetta grúvulega Júroblogg, sem er ritað 40 mínútum
fyrir undankeppni, aðeins fyrr á ferðinni en í fyrra, en hér eru mínar spár og dómar þetta kvöldið,
gjössovel:
Fyrri hluti, ég er ennþá að vinna seinni hlutann.
1 Poland - Magdalena Tu - Jestem
Þokkalegt popplag, hef samt ekki trú að að það fari áfram
2 Norway - Stella Mwangi - Haba haba
Hittari, alveg er það ótrúlegt hvað Noregur er góður í Júrófræðum, finnst hún Stella samt ekki nógu örugg á tónunum, Já já áfram fer þetta of kors.
3 Albania - Aurela Gace - Feel the passion
Konan sem svífur, þetta er ekki að heilla mig við fyrstu sýn og heyrn, hef samt trú á að það fara áfram bara vegna þess að þetta er Albanía.
4 Armenia - Emmy - Boom Boom
Grípandi smellur, já held þetta fari áfram
5 Turkey - Yuksek Sadakat - Live it up
Úú ú 80´s legt lag, er ekki alveg viss með þetta, jú þetta fer áfram.
6 Serbia - Nina - Caroban
Vel gert og flott sviðsmynd, hef trú á þessu, segi já áfram
7 Russia - Alexey Vorobyov - Get you
Grípandi 80´s lag, fer líklega áfram
8 Switzerland - Anna Rossinelli - In love for a while
Vá vá vá, ég vissi ekki að þetta væri Júróvision lag, þetta fer pottþétt áfram, af hverju getur enginn samið svona grípandi lag fyrir Jóhönnu Guðrúnu.
9 Georgia - Eldirne - One more day
Svona Kim Wilde rödd, held samt að lagið sé ekki nógu gott, fer ekki áfram
10 Finland - Paradise Oskar - Da da dam
Það fer svolítið eftir frammistöðu þessa flytjanda í kvöld hvort hann eigi skilið að fara áfram, held að hann fari ekki áfram
11 Malta - Glen Vella - One life
Æ ég veit ekki, er ekki hrifin, en fer ekki Malta alltaf áfram ?
Tek það fram að þetta er allt mín skoðun og gert af einskærum áhuga á Eurovision, og svo fer það eftir frammistöðu flytjanda hvernig þetta matreiðist ofan í okkur, góða skemmtun
Framhald á eftir.
Blomst
12 San Marino - Senit - Stand By
Heillar mig ekki, held þetta fari ekki áfram, (er þetta nýtt land ?)
13 Croatia - Daria Kinzer - Break a leg
Já já grípandi lag, þetta fer áfram, brake a leg
14 Iceland - Sjonni's Friends - Coming home
Krúttlegu vinir Sjonna Brink, þetta verður erfitt fyrir okkur litla landið, held við verðum á brúninni og komumst ekki áfram því miður, en vona það samt, Áfram ísland!! Finnst vanta kraft í strákana.
15 - Hungary - Kati Wolf - What about my dreams?
Grípandi frá fyrstu heyrn, hef trú á þessu, minnir á Whitney vinkonu okkar með lagið I wanna dance with somebody, já þetta fer áfram.
16 Portugal - Homens da Luta - A luta e alegria
Búsáhaldabyltingin, nei ég trúi ekki að þetta fari áfram
17 Lithuania - Evelina Sasenko - C'est ma vie
Held ekki, ágætlega sungið samt
18 - Azerbaijan - Eldar Gasimov & Nigar Jamal - Running scared
Mér finnst þetta grípandi lag, hef trú á því
19 - Greece Loukas Giorkas feat. Stereo Mike - Watch my dance
Ekki lag fyrir mig, en það gæti alveg farið áfram.
Yfir og út, úff er farin að horfa.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.2.2011 | 23:49
Árlegt Eurovision blogg frá blóminu
Dömur mínar og herrar
Ég hef vanalega ritað hér mitt álit á Eurovision og Söngvakeppni sjónvarpsins árlega, en ég náði ekki að pikka þetta inn fyrr en núna, eftir að ljóst er hverjir fara fyrir Íslands hönd til Þýskalands í ár.
Ég er mjög ánægð með keppnina í ár, mjög flott og vönduð tónlist, en auðvitað hefur fráfall Sigurjóns Brink haft mikil áhrif á keppnina eins og reyndar alla tónlistar unnendur á landinu, lagið hans hefur því fengið meiri athygli og er það annarra að dæma um það hvort það hafi verið í raun lagið eða öll umfjöllunin sem skilaði því alla leið, læt hér að neðan mína dóma á lögin sem kepptu í kvöld og flutninginn á þeim, fékk myndirnar og textann að láni á vefnum hjá RUV (er það ekki við, íslenska ríkið?)
Aftur heim
Aftur heim: Ég hlustaði á lagið um leið og það kom inn á vefinn hjá Rúv og fann strax að það var mjög grípandi og mikil gleði yfir því, það var mjög vel sungið hjá Sjonna sjálfum á upptökunni og líka mjög vel gert hjá Vinum Sjonna Brink, en eins og allir tóku eftir mjög sérstök stemmning. Ég er sátt við að senda þetta lag.

Ástin mín eina
Ástin mín eina: Virkilega fallegt lag og gaman að sjá nýja höfunda komast svona langt í keppninni, Erna Hrönn gerði þetta mjög vel, gaman að sjá breytinguna á útsetningunni og áherslunum frá upphafsflutningnum, Erna var stórglæsileg á sviðinu í kvöld, svakalega flottur kjóllinn hennar. Þetta var ekki rétta eurovision lagið okkar að mínu mati, en vel gert.
Ef ég hefði vængi: Gaman að sjá Halla Reynis með þetta flotta og grípandi lag, hann er svo flottur laga og textahöfundur, ekki meira um það að segja, hann stóð sig vel. Ég hefði alveg verið til í að senda hann út fyrir Íslands hönd.
Ég lofa: Fínasta lag hjá Vigni. Jógvan súkkulaðisætur á sviðinu og gerir þetta virkilega vel, en það var eitthvað með bakraddirnar sem mér fannst yfirdrifið. Ekki rétta eurovision lagið í ár.
Ég trúi á betra líf: Kraftmikið lag frá Hallgrími og greinilega rétti flytjandinn valinn, Magni var svakalega flottur og lagið venst virkilega vel og röddin hans nýtur sín alveg í botn. Ég kaus þetta lag og hefði viljað senda það til Þýskalands.
Eldgos: Já það er nú það
. Ég var ekki mjög hrifin af þessu lagi fyrst en það var glæsilegt í kvöld og á tímabili þá hefði ég alveg trúað að það kæmist langt, en það voru bara svo margir góðir eða reyndar bara allir, ég er rosalega hrifin af Matta Matt sem söngvara en hefði samt ekki sent þetta lag.
Nótt: Jóhanna Guðrún er besta söngkona Íslands en það er ekki þar með sagt að við kjósum hana til að fara aftur. Lagið heillaði mig ekki þó að ég hafi alveg trú á að það verði vinsælt sem popplag, ég var einmitt að hugsa að ef við hefðum valið hana til að fara út aftur þá væri það endurtekning á því þegar Selma fór í annað sinn, það virkar ekki að mínu mati. Lagið ekki rétta eurovision lagið því miður.
Ég hef alltaf jafn gaman að þessari keppni og sit yfirleitt ein á meðan aðrir fjölskyldumeðlimir horfa annars staðar, því það má ekki trufla mig, ég gæti misst af einhverjum tón eða hreyfingu á sviðinu, það er t.d. ekki gaman fyrir mig að fá heimsóknir á þessum kvöldum eða vera stödd annars staðar en heima því þá get ég ekki einbeitt mér nægilega vel að þessu, ég lifi mig inn í þetta og held stundum niðri í mér andanum á meðan ég dáist að þessum hetjum sem þarna koma fram, úff já nú er spennufall og pása á laugardagskvöldum frá þessu. Ég er spennt að sjá okkar menn í Þýskalandi í vor flytja AFTUR HEIM.
Takk fyrir mig í kvöld.
Söngelska blómið
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.12.2010 | 19:34
Þó allt sé breytt.....þá koma jól
Jólin og aðventan eru gleðitímar en þeim fylgir líka mikill söknuður, en við verðum að læra að njóta þrátt fyrir aðstæður. Ég setti DVD disk í tækið áðan með 5 ára afmælistónleikum Frostrósa, Dívurnar og Tenórarnir, svo ofboðslega fallegt og vel flutt, ég fór á tónleika með þeim fyrir jólin 2008, þá heyrði ég lag eftir Connie Harrington sem Hera Björk og Margrét Eir flytja en Hera er textahöfundur, þetta er svona jóla söknuður þess sem hefur misst ástvin og jólin koma hvort manni líkar það betur eða ver, þetta er einmitt árið 2008 sem ég fór á þessa tónleika og árið sem pabbi dó. Lagið heitir Það koma jól og ég set hér link neðst á síðu sem ég fann á netinu fyrir þá sem vilja hlusta. Sem betur fer hefur árið verið gott hjá mér, en ég þekki fólk sem á um sárt að binda núna þessa aðventuna og ég hugsa mikið til þeirra, einhvern veginn yljar þetta lag manni og gefur manni orku og kemur fram með þá staðreynd að þó allt sé breytt...... þá koma jól.
Knús á liðið
Jóla blómið sem er að vekja upp bloggið sitt :)
http://listen.grooveshark.com/#/s/+a+Koma+J+l/2uW7xb
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.5.2010 | 19:00
Korter í Eurovision, áfram Ísland
Já góða kvöldið, hér er enn smá líf, ég gat nú ekki sleppt því að setja inn eins og eina færslu þegar það fer að nálgast evróvision keppnina í Oslo.
Gullfiskurinn okkar hann Majas á einmitt afmæli í dag, er orðinn 8 ára og er stór, syndir í krukku og er mjög mannblendin og skemmtilegur fiskur. Það hafa verið skiptar skoðanir með aldurinn á honum, en hann er allavega 8 ára, ég fann mynd sem var tekinn af honum í ágúst 2002, þá var hann hjá okkur, kannski er hann eldri.
Ég er komin í Eurovision gallann.
Jæja ég skrifa þetta í áföngum og get ekki dregið þetta lengur því forkeppnin er í kvöld, við erum nr. 17 og síðasta landið sem stígur á svið.
Ég var ekkert yfir mig hrifin af laginu okkar þegar það vann forkeppnina hér, en ég veit að Hera Björk er stórgóður flytjandi, það er spurning hvað það fleytir okkur langt. Ég var ekki bjartsýn í fyrra ef ég man rétt þegar Jóhanna Guðrún söng Is it true, ég var persónulega ekkert hrifin af því lagi, en hún kom okkur alla leið í annað sætið. Svo ég verð að segja að það getur allt gerst miðað við vinsældir íslenska hópsins og mikla landkynningu með ís og elda.
Tek það fram að ég hef ekki séð neina veðbankaspár, þetta er eingöngu mitt álit :)
1. Run Away - Moldova 2010 - SunStroke Project & Olia Tira -
Já já, ágætur hittari, trúi að þetta komist áfram og það var rétt hjá mér
2. Lost and Forgotten Russia - Peter Nalitch Band
Hjálpi mér hamingjan, hef ekki smekk fyrir þessu, ekki alveg öruggur á tónunum söngvarinn en Rússland kemst örugglega áfram þrátt fyrir skrítið lag.
og það var rétt hjá mér
3. Siren - Estonia - Malcolm Lincoln
Veit ekki......hmmmm.....mjög spes lag, held að þetta komist ekki áfram
og það var ekki rétt hjá mér
það komst áfram
4. Horehronie - Slovakia - Kristina Pelakova
Það er eitthvað við þetta lag, vel flutt held að það komist áfram.
og það var ekki rétt hjá mér
það komst ekki áfram
5. Työlki Ellää- Finland - Kuunkuiskaajat
Of tilgerðarlegt, samt hresst lag og fínar stelpur, held að þetta fari ekki áfram
og það var rétt hjá mér
6. What For?- Latvia - Aisha
Já þetta er ágætur smellur, og nútímalegur, þetta kemst áfram
og það var ekki rétt hjá mér
það komst ekki áfram
7. Ovo Je Balkan- Serbia - Milan Stanković
Nei nei nei, er ekki hrifin, vill ekki að þetta fari áfram
og það var ekki rétt hjá mér
það komst áfram
8. Thunder And Lightning - Bosnia and Herzegovina - Vukašin Brajić
Rokk og ról, mmmmmm.....ágætlega flott lag og góður kraftur, ég segi já...að þetta fari áfram og það var rétt hjá mér
9. Legenda- Poland - Marcin Mroziński -
Undarleg lagasmíð, drama drama, hef ekki trú á þessu. og það var rétt hjá mér
10. Me And My Guitar- Belgium - Tom Dice
Já, einlægt og fallegt lag, veit ekki, þetta er alveg á miðlínunni :) bæði mínus og plús
og það var rétt hjá mér
11. My Dream - Malta - Thea Garrett
Mér finnst þetta ágætt, hef á tilfinningunni að hún sé dáldið stressuð og nær ekki að túlka nóg, held að þetta skili sér ekki
og það var rétt hjá mér
12. It's All About You - Albania - Juliana Pasha
Júhú...geggjað stuð í þessu lagi, vá, minnir á lagið okkar, í krafti og nútíma, já áfram...
og það var rétt hjá mér
13. OPA - Greece - Giorgos Alkaios & Friends
Harðir naglar, vekur athygli, gengur ekki Grikklandi alltaf vel ? Ekki samt að mínu skapi.
og það var rétt hjá mér
14. Há Dias Assim- Portugal - Filipa Azevedo
Hvert fór píanóleikarinn ? Þokkaleg ballaða, vel flutt, alveg á miðlínunni, bæði mínus og plús
og það var rétt hjá mér
15. Jas Ja Imam Silata- F.Y.R. Macedonia - Gjoko Taneski
Æji, týpísk júróvision uppskrift frá Makedóníu, og þó þegar kemur inn í lagið byrja þeir að rappa og þá skánar lagið mikið, er ekki rapp í tísku ??? Jú svei mér þá, þetta lag vinnur á, jú jú það fer áfram.
og það var ekki rétt hjá mér það komst ekki áfram 
16. Butterflies - Belarius - 3+2
Fallegt lag, átta mig ekki alveg á þessu, jú flott held ég, áfram já...
og það var rétt hjá mér
17. Je Ne Sais Quoi- Iceland - Hera Björk
Okkar lag, jú alveg rosalegur kraftur í þessu miðað við mörg hin, áfram Ísland 
og það var rétt hjá mér
Þessi færsla er gerð á hálftíma, korter í Eurovision undankeppni 25. maí 2010, en lagið sem ég held mest með í þessari keppni er Danska lagið, vá þvílík útgeislun og frábært lag, vona að þau vinni, ef við vinnum ekki (sem við gerum ekki).
Er farin að horfa, yfir og út....
Euro blómið
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.1.2010 | 17:16
Ekki alveg dauð
Ég ákvað að setja hér inn nokkrar línur til að halda lífi í blogginu mínu, ég er ekki alveg í stuði til að skrifa, en læt vaða hér inn fljótlega fleiri línur.
Kveðja blómið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.9.2009 | 13:50
Dýrtíðin á Íslandi
Góðan daginn ef það er einhver eftir sem les þetta 
Sparnaðarráð sem ég sá á er.is veit ekki hver er höfundurinn en sumt af þessu ætti maður að fara að prófa held ég.
-Þegar maður ferðast með strætó og á hvorki strætómiða né kort er ágætt ráð að borga farið með tíköllum. Þá tekur bílstjórinn ekki eftir því þó að það vanti tvo eða þrjá tíkalla upp í rétt fargjald. Þannig er hægt að spara allt að 30 krónur í hverri ferð - og safnast þegar saman kemur!
-Baka brauð.
Nýta afganga.
Ef þú ert reglulega að henda einhverju t.d. áleggi, skipta pakkanum upp í smærri einingar og setja eitthvað í frystin. Eins með ost, kaupa stór stykki og skipta upp, hafa eitt stk í notkun og restina í vel lokuðum pokum í ísskápnum, þá verður osturinn síður gamall... Ef þú átt lítinn ostbita eftir sem er farin að eldast, skerðu hann í teninga og settu í frystinn, getur notað í ostasósur eða sett í muolinexið og búið til rifin ost ofan á pizzu og eða ofnrétti.
Nýta tilboðin.
Kaupa skvísu (flösku með röri) í apótekinu fyrir barnið/börnin þá er maður alltaf með eitthvað fyrir þau að drekka og getur fyllt á með vatni, og losnar við að kaupa svala eða slíkt í bæjarferðum (safnast þegar saman kemur :) ).
versla á föstudögum því þá eru flestar búðir með helgaraflætti.
og hægt að gera góð kaup.
frysta afgangshafragraut og þegar þú ert komin með smá slatta, nota í muffins; var að prófa þetta fyrir nokkrum dögum og heppnaðist mjög vel.
-Skera appelsínubörk í ræmum og búa til sælgæti.
-Búa til sína eigin jógúrt úr nýmjólk eða léttmjólk; hef gert þetta og jógúrtin er mjög góð.
-Þær sem nota moppu (til að sópa). Í stað þess að kaupa alltaf bláu klútana, þá er hægt að sauma einn (eða fleiri) úr óbleiktu lérefti ( eða bara hvaða efni sem maður á).
-Sauma náttföt á börnin úr gömlum bolum.
-Breyta buxum í pils
-Skera kremtúpur og flöskur í tvennt til að ná afganginum út. Spurning líka um að þynna sjampó með vatni, hef ekki enn prófað það.
-Nota ólífuolíu sem body lotion (ég læt uppáhaldslyktina úr Body Shop út í til að fá smá ilm af olíunni, en það þarf ekki)
-Rífa bleyjur niður til að þvo barnarassa eftir bleyjuskipti
-Sjóða niður mikið af spagetti/pizzusósu í einu til að eiga. Þetta sparar aðallega tíma, sérstaklega ef maður á birgðir af (heimatilbúnum) pizzum í frysti.
-Nota ónýta jógúrt og súrmjólk í brauð.
-Ef ostur er á tilboði. Birgja sig upp og rífa niður og frysta. Smjörstykki má líka frysta ef þau eru á tilboði.
-Þegar smjörið er búið, geyma bréfið og nota þegar þarf að smyrja form.
-Nota gluggaumslög sem risspappír. Endilega endurnýta önnur umslög, það má vel líma yfir nafnið framaná.
-Klippa sjálf hárið á börnunum.
-Fara í gönguferðir eða sund sem líkamsrækt.
-Útbúa klaka fyrir börnin annaðhvort úr safa(kannski þynntum) eða djúsi.
-Morgunkorn er dýrt. Nota frekar hafragraut og bragðbæta með kanil, rúsínum, eplabitum, sólblómafræum, möguleikarnir eru endalausir.
Þynna uppþvottalöginn með vatni, eiga tvo brúsa og nota annan sem áfyllingu á hinn og bæta vatni við.
- Kaupa áfyllingu á mýkingarefnið og fylla x2 -x3 á brúsann með því.
- Aldrei að henda matarafgöngum, alltaf hægt að búa til ofnrétti eða eggjakökur úr þeim, bæta bara við sósum/osti.
-geri matseðla fyrir mánuðinn og geri ein STÓR innkaup í byrjun mánaðar; sæki svo bara mjólk, grænmeti og ávexti þess á milli
-baka allt brauð sem er borðað á heimilinu
Ég finn alveg svakalega fyrir því hvað allt hefur hækkað, hlutir eins og shampoo og dömubindi fara að verða munaðarvörur og margar aðrar vörur. Þetta er ekki gott.
Allt í góðu annars hér, við erum orðin 5 í heimili aftur, svaka góð tilfinning að hafa alla ungana undir sama þaki.
Ég fer alveg að byrja í söngnáminu og hlakka mikið til að gera eitthvað fyrir sjálfa mig.
Kveðja
Blomst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.7.2009 | 12:56
Sumarfrí og fleira
Hér hefur allt verið steindautt eins og mörgum öðrum bloggsíðum síðan Fésbókin hóf að tröllríða landanum. En það gengur ekki.
Sumarfríið mitt hófst 6. júlí og alla dagana er búið að vera frábært veður, eiginlega of heitt að mínu mati, ég pantaði ekki spánarfrí frekar en venjulega af því að ég er ekki hrifin af miklum hita, maður er sveittur daga og nætur, ég er ekki að fíla það, en sumir elska þetta og ber ég virðingu fyrir því og reyni að þegja. Ég fór keyrandi með soninn og yngri dótturina á Ísafjörð 8. júlí og heim aftur 10. júlí, heimsóttum við eldri dóttur í þennan stutta tíma, sú eldri fékk svo far með mér í Búðardal til að fara með kærastanum á ættarmót, en sú yngri varð eftir á Ísó til að hjálpa til við barnapössun hjá bróður mínum. Það var fínt að koma heim aftur þó stutt væri. Mér finnst æðislegt að dúllast með einkasyninum í fríi, við sofum út og tökum tarnir í dugnaði t.d. gerðum slátur, sultu ofl.
Þetta er ljúft, heimilið okkar er alltaf að taka á sig meira heimilisbrag og er blómið að róta sig vel hér í þessu húsi, á þessum stað
.
Ég elska að vera svona heima og þurfa ekki að hugsa um vinnuna, fer að vinna aftur 4. ágúst
, er ekki að nenna því.
Kveðja
Blómið í blóma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2009 | 18:48
Ný færsla
Ég var komin með samviskubit yfir færsluleysinu og ákvað að skella í eins og eina færslu, en hún verður nú ekki löng, því andleysið er algjört þessa dagana, er að stíga upp úr flensu og þrekið ekki komið alveg.
Mæðradagur í dag, til hamingju mamma og allar mömmur.
Allt fínt að frétta annars, nú er maður farin að telja niður í sumarfrí, mikið verð ég glöð þegar sá tími kemur, ég ætla svo sem ekkert sérstakt að fara, því það er svo gott að vera heima.
Smá viðbót, nú er Eurovision tíminn hjá Eurovision aðdáendum, ég er ein af þeim, ég les Eurovision fréttir og fylgist með.
Þvílíkt stuð hjá Íslenska hópnum, ég væri sko til í að vera í þeirra hópi, sjá þetta myndband, algjört æði: http://www.youtube.com/watch?v=CW7SVsOwDio&eurl=http%3A%2F%2Fwww%2Edv%2Eis%2Ffrettir%2F2009%2F5%2F9%2Fsong%2Dit%2Dtrue%2Drussnesku%2Dmyndbond%2F&feature=player_embedded
svooooo gaman að syngja þessi lög. Ég var nú ekkert sérstaklega ánægð með að senda Is it true, og er því ekki með miklar væntingar, en ég hef gaman að því að fylgjast með Jóhönnu og dáist að henni og óska henni góðs gengis. Ótrúlega stór hópur sem fer fyrir Íslands hönd, Kræst hvað ætli þetta kosti?, snuff....allt of miklum peningum varið í þetta.
Íslenska bjartsýnin borgar sig, við erum að fara að vinna þetta eins og alltaf ha ha ha.
Blomst
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.4.2009 | 16:18
Ákveðinn ungur drengur
Smá saga um minn sjálfstæða 5 ára dreng
Við fórum saman í Bónus áðan og ég fór til að finna eitthvað í matinn og kaupa mjólk í kælirinn og hann ætlaði að skoða í einhverja hillu nálægt. Svo þegar ég kem út úr kælinum þá finn ég stráksa hvergi, ég leitaði eins og geðsjúklingur og var farin að hugsa ýmislegt skrítið og fannst á tímabili að ég hefði bara haldið að hann hefði verið með mér. Ég skildi kerruna eftir og kíkti út að bíl og inn á klósett en hann gufaði upp. Ég þorði ekki að fara heim, því ef hann væri fastur eða hefði falið sig. Svo ég beið og hélt áfram að rúnta um og þá kemur hann inn með pabba sínum, þá hafði hann bara hlaupið heim því hann fann ekki mömmu. Mamman var ekki með gsm símann sinn. Það er svaka hvasst hérna og ég í raun hissa að hann hefði þorað. Hann sagði við pabba sinn: mamma var að kaupa mjólk og ég fann hana ekki, en hann var ekki grátandi eða hræddur. ég hef ekki taugar í svona drengi....úff, ég er enn að jafna mig.
Mamma Emils í Kattholti
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.4.2009 | 20:06
Ef þú ert súr, vertu þá sætur
Mér hefur aldrei líkað við skápa þar sem eldhúss ruslið er geymt og ég lærð það á minni dvöl í bílskúrnum þar sem engir voru skáparnir að lífið er fínt án ruslaskápa, ég keypti stóra fötu/tunnu sem er bleik úr plasti, og reyndist svona líka vel, keypti poka á rúllu í Rekstrarvörum og var laus við að passa upp á fullar litlar ruslatunnur og skápa sem verða skítugir. Nú erum við með í nýja eldhúsinu tvær litlar tunnur og finnst mér þær alltaf vera fullar. Er að spá í að reyna að fá mér
Svona Brabantia tunnu, en læt örugglega þessa bleiku duga að sinni.
Ýmislegt hefur drifið á daga okkar m.a. tannlæknaferðir og bæði sonur og yngri dóttir fengu bólusetningu 14 ára og 5 ára, drengurinn verður 5 ára á morgun 7. apríl og er það mikil tilhlökkun. Við héldum veislu fyrir fjölskyldu og vini hans sem eru ekki á deildinni hans á leikskólanum, svo er afmæli fyrir 12 krakka af deildinni á morgun, það verður stuð.
Annars er verið að plana ýmislegt skemmtilegt um Pauskana.
Annars heyrði ég lag í útvarpinu áðan, gamalt lag með Olgu Guðrúnu Árnadóttur, frábær texti sem á vel við í okkar þjóðfélagi í dag, við megum ekki gleyma okkur og verðum að hugsa jákvætt.
Ef þú ert súr
vertu þá sætur
sjáðu í speglinum hvernig þú lætur
ekkert er varið í sút eða seyru
teygðu á þér munnvikin út undir eyru
Galdurinn er að geta brosað
geta í hláturböndin tosað
geta hoppað hlegið sungið
endalaust
Ef þú ert fýldur þá líkistu apa
eða krókódíl sem er af fúll til að gapa
ekkert er varið í sút eða seyru
teygðu á þér munnvikin út undir eyru
Galdurinn er að geta brosað
geta í hláturböndin tosað
geta hoppað hlegið sungið
endalaust
Lag: Ólafur Haukur Símonarson
Texti: Ólafur Haukur Símonarson
Hláturblómið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)










gylfigisla
fjallakor
heidabj
daglegurdenni
harpao
ganna